Gerður Kristný - Ballið á Bessastöðum

Dimma hefur gefið út á hljóðbók hina fjörugu og ærslafullu sögu Ballið á Bessastöðum eftir Gerði Kristnýju í lestri höfundar. 

Sagan er um forseta, þrjá forsetaritara, gröfukarla og hjólabrettastelpu, hundrað ára gamla konu og krakkaskara sem lendir í vandræðum við Tjörnina. Kona úr Mývatnssveit, sem veit heil ósköp um ský, kemur líka við sögu. Hver getur ímyndað sér ball á Bessastöðum með öllum þessum persónum og mörgum fleiri? Saga sem gleður bæði börn og fullorðna. Ballið á Bessastöðum er fyrsta hljóðbók höfundarins fyrir unga lesendur.

1 geisladiskur - 66 mín.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/159

Efni