Gyrðir Elíasson - Sandárbókin

eftir Gyrði Elíasson

Sandárbókin - pastoralsónata eftir Gyrði Elíasson er komin út á hljóðbók í lestri höfundar. Sagan fjallar um fráskilinn málara sem sest að í hjólhýsabyggð og hyggst einbeita sér að því að mála tré. Hann hefur orðið fyrir ýmsum skakkaföllum í lífinu og dvöl hans í þesari sérkennilegu byggð er öðrum þræði hugsuð til að freista þess að öðlast hugarró. Ýmislegt reynist þó standa í veginum.
Gyrðir Elíasson er einn listfengasti rithöfundur þjóðarinnar og fáir ná betur þeirri dýpt að láta tilfinningar og kenndir krauma undir yfirborði orðanna. Sandárbókin nýtur sín einkar vel í lestri höfundar, en prentuð útgáfa bókarinnarar kom út hjá Uppheimum sl. haust og nýverið í kiljuútgáfu.
Sandárbókin er 160 mín. að lengd á tveimur geisladiskum. Sagan var hljóðrituð í Hljóðvinnslunni, en kápuhönnun var í höndum Aðalsteins S. Sigfússonar.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/8

Efni