Bragi Ólafsson - Ljóð

Um er að ræða úrval ljóða, en tónskreytt geislaplata með lestri skáldsins fylgir með. Matthías Hemstock hefur samið tónlist við ljóðin og leikur á slagverk og píanó. Ljóðin í bókinni eru valin úr fjórum áður útkomnum ljóðabókum Braga, sem eru Dragsúgur,Ansjósur, Ytri höfnin og Klink.

Í sömu ritröð eru ljóð Gyrðis Elíasssonar með tónskreytingum Kristins Árnasonar, ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur með tónskreytingum Tómasar R. Einarssonar, ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar með tónskreytingum Sigurðar Flosasonar, ljóð Sigurbjargar Þrastardóttur með tónskreytingum Eðvarðs Lárussonar, ljóð Sigurðar Pálssonar með tónskreytingum Jóels Pálssonar, ljóð Óskars Árna Óskarssonar með tónlskreytingum Sunnu Gunnlaugsdóttur, ljóð Sjóns með tónskreytingum Agnar Más Magnússonar og ljóð Gerðar Kristnýjar með tónskreytingum Kiru Kiru.

Ljóð eftir Braga Ólafsson er 24 bls. auk geislaplötunnar. Friðrik Snær Friðriksson sá um útlitshönnun.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/140

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni