Gerður Kristný - Ljóð

Valin ljóð úr bókum höfundar og meðfylgjandi er tónskreytt geislaplata með lestri skáldsins. Kira Kira samdi tónlistina og leikur á fótstigið orgel, víbrafón, melódíku og gítar. Ritröð Dimmu með tónskreyttum ljóðum er nú öll komin út og telur 9 útgáfur alls, en það eru auk ofangreindrar útgáfu; ljóð Gyrðis Elíasssonar með tónskreytingum Kristins Árnasonar, ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur með tónskreytingum Tómasar R. Einarssonar, ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar með tónskreytingum Sigurðar Flosasonar, ljóð Sigurbjargar Þrastardóttur með tónskreytingum Eðvarðs Lárussonar, ljóð Braga Ólafssonar með tónskreytingum eftir Matthías Hemstock, ljóð Sigurðar Pálssonar með tónskreytingum Jóels Pálssonar og ljóð Sjóns með tónskreytingum Agnars Más Magnússonar.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/21

Efni