36 jazzlög

36 Jazzlög er ný bók með tónsmíðum Sigurðar Flosasonar.  Bókin geymir öll lögin af plötunum Gengið á lagið, Gengið á hljóðið og Leiðin heim, auk ýmissa annarra laga sem birst hafa á öðrum plötum, m.a. öll lögin af nýja diskinum Dark thoughts.  Auk nótnaútgáfu laganna fylgja hugleiðingar höfundar um lögin og tónsmíðar almennt.  Forsíðumynd tók Nökkvi Elíasson, en Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði útlit. Dimma gefur út og dreifir í verslanir. Sigurður Flosason hefur áður sent frá sér 2 nótnabækur; Hvar er tunglið? 24 jazzsönglög og 18 blúsuð jazzlög.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/133

Efni